Hvernig á að velja sína uppsetningu?
Mörgum gæti fundist flókið að skilja hvernig er best að velja sína uppsetningu á Paper Republic bókunum svo við settum saman þessar leiðbeiningar til að einfalda þetta aðeins.
Fyrst þarftu að velja stærð sem hentar þér. Við erum með 3 stærðir:
- Pocket (10,8 x 15cm)
- XL (14,8 x 21 cm) / A5(15,8 x 22,2 cm)
- A4(32 x 23 cm)

Leðurbækur:
Svo velurðu týpu af leðurbók. Við erum með 3 mismunandi týpur í allskonar litum:



Grand Voyager er til í Pocket og XL stærð og er úr einföldu leðri og er einlit. Hún hefur eina teygju á kjöl og enga vasa í kápunni. Þessi er nett og létt og hægt er að bæta við Card & Cash holder til að bæta við vösum.
Le Portfolio er til í A5 og A4 stærðum og kemur einlituð með eina teygju í kjölnum. Hún er með einstaklega mikið af ísaumuðum vösum í kápunni úr leðri sem hægt er að nota undir allskonar miða, penna, passport, kort og hvaðeina annað.
Le Trifold er einstaklega slitsterkt leðurkápa í A5 stærð með auka broti sem vefst utan um bækurnar og verndar þær sérstaklega vel. Hún er saumuð úr tvöföldu leðri og er tvílit með handhægan vasa innaní og þrem teygjum í kjölnum svo hún heldur einstaklega mörgum bókum.
Þegar þú hefur valið þér týpu og lit, er komið að því að velja bókafyllingar.
Bókafyllingar:
Við erum með tvær aðal týpur af bókafyllingum: Notebook set of 2 og Book refill.

Notebook (set of 2) er sett af minnisbókum með 48 blaðsíður og 80 g/m² pappír. Þær koma í öllum stærðum með blaðsíður sem eru annaðhvort plain, dotted, ruled, squared eða graph(litlar rúður) og eru einstaklea léttar og meðferðilegar.

Book refill er bók með saumaðan kjöl svo þær liggja flatar þegar þær eru opnar. Þær koma í öllum stærðum og innihalda 96 blaðsíður sem eru plain, dotted eða ruled, með 120 g/m² pappír svo þær henta vel fyrir penna án þess að það sjáist í gegnum blaðsíðurnar.
Aðal munurinn á þessum er að Notebook er þynnri og þess vegna léttari en Book refill en hún helst ekki flöt þegar hún liggur, sem Book refill gerir.



Book refill x The Dybdahl Co. eru alveg eins og Book refill bækurnar nema á kápunni eru listaverk frá The Dybdahl Co. Þær koma í Pocket og XL/A5 stærð og þrem línum: Reef, Japan og Animal Companions og hver lína er með mismunandi kápu fyrir plain, dotted og ruled blaðsíður.
Fyrir listamennina erum við með tvær bækur:

Drawing book | 150 g/m² er auð bók sem kemur í öllum stærðum og hentar einstaklega vel fyrir blýanta, penna og tússliti.
Watercolour book | 300 g/m² er auð bók í XL/A5 stærð með premium kaldpressuðum vatnslitablaðsíðum og auðri fram- og baksíðu sem eru 640 g/m² sem þú getur sérhannað með þinni eigin list.
Þær eru báðar með saumuðum kjöl svo þær haldast opnar þegar þær liggja.
Dagbækur
2026 dagbækurnar koma í öllum stærðum og eru til í þrem mismunandi uppsetningum.



Daily er með einn dag á hverri blaðsíðu.
Weekly hefur heila viku á opnu.
Weeks and notes er með vikuna vinstra megin á opnunni og dotted blaðsíðu hægra megin svo þú hefur frelsi til að skrifa lista eða yfirlit yfir vikuna þar.

Timeless planner er fullkomið ef þú átt það til að gleyma að skrifa í dagbækur. Þessi er með vikuopnu þar sem þú skrifar bara inn dagssetningarnar sjálfur svo þú getur nýtt hverja opnu. Hún kemur í Pocket og XL/A5 stærð.

Dojo book and stickers hjálpa þér að búa til þitt eigið dagbókarumhverfi. Bókin er með dotted blaðsíðum og efnisyfirliti fremst svo þú getur sett hana upp eins og þú vilt. Límmiðarnir koma í yearly, monthly og daily settum sem þú getur notað til að auðvelda þér að setja upp þitt eigið dagbókarumhverfi.

Card & Cash holder er fullkomin leið til að bæta við auka geymslu í bókina þína. Það hentar fullkomlega fyrir kort og seðla, auk þess að halda miðum, límmiðum eða hverju sem er sem þú þarft að halda við hendina.

Le Loop eru pennahaldarar úr leðri sem festir eru á bókina þína með seglum og koma í allskonar litum.

Le Stylo eru gæða stílhreinir pennar gerðir úr hágæða áli í mismunandi litum með 0.5mm oddi sem gerir fínar 0.2mm línur. Hægt er að kaupa áfyllingar í pennana. Allir pennarnir eru með svörtu bleki.

Ribbon kit / Ribbon sett eru auka teygjur sem hægt er að kaupa og koma í mismunandi stærðum, Pocket, XL/A5 og A4. Þær koma í allskonar litum og innihalda bæði styttri teygju til að setja utanum bókina og lengri teygju sem fer innaní bókina til að halda bókaáfyllingum. Ribbon Kit inniheldur 10 teygjur í mismunandi litum og Ribbon Set inniheldur 2 teygjur í sama lit.

Að lokum vil ég benda á eitt auka leyniráð, ef þú vilt setja auka skraut framaná eða inní bókina er tilvalið að kaupa prjónamerki sem við seljum og festa í teygjuna. Við erum með mikið úrval af prjónamerkjum svo auðvelt er að finna eitthvað sér við hæfi.
