Um Okkur

Seljandi:

SMG-65
kt: 6012232010
Vsk: 151287

----------------

Við erum fjölskyldufyrirtæki að selja vörur sem eru okkur kærkomnar og höfum gaman af. Við elskum ekkert meira en fallegar vörur og handverk sem prýða hvert heimili og allir njóta góðs af.

Búðin er staðsett á Lækjargötu 2, 220 Hafnarfirði

Eigandi búðarinnar er Soffía M Gísladóttir
   Soffía var áður starfandi hjúkrunarfræðingur sem þráði að opna handavinnubúð og ekki seinna vænna en að byrja núna. Soffía tekur á móti ykkur með opnum örmum og þvílika handavinnuviskan sem hún býr yfir! Hún hefur verið að vinna með höndunum síðan hún var lítil og finnst ekkert skemmtilegra en að prjóna og njóta yfir góðum kaffibolla.

Eigandi Sigma watches er Ragnar Magnússon
   Ragnar er hönnuður í húð og hár, Ragnar er byggingarfræðingur sem í frítíma sínum handsmíðar úr og getur dundað sér þvílíkt við úra pælingar og allt tengt. *Sigma úrin eru einungis seld í verslun á Lækjargötu 2

Málverk eftir Margréti Sól Ragnarsdóttir
   Margrét Sól er listakona í fingur fram. Hún er menntaður heilbrigðisverkfræðingur og starfar hjá Össur en þess á milli má hún til með að  mála falleg málverk sem hentar hverju heimili sem er. 
* Málverkin eru einungis seld í verslun á Lækjargötu 2

Logo er hannað af Júlíu Ingadóttur
Vefsíða er keyrð af shopify og hönnuð af Viktoríu Dögg