Skilmálar

Almennt
  Seljandi er SMG65 ehf, kt: 6012232010 
SMG65 ehf/prjónahornið tekur ekki ábyrgð á villum eða breytingum sem kunna hafa verið gerðar á verði eða vörulýsingu. Fyrirtækið hefur rétt á að breyta verði eða hætta sölu án fyrirvara. Séu einhverjar undantekningar er það skoðað hverju sinni.

Verð í verslun og netverslun innihalda VSK.

Afhending á vöru/m
  Afhending á vöru/m fer fram með Dropp, gjaldskrá er hægt er að skoða Hér en einnig er hægt að sækja í verslun á Lækjargötu 2. 220 Hafnarfirði á opnunartíma eftir að seljandi hefur sent póst um að pöntun sé tilbúin til afhendingar.
SMG65 ehf/prjónahornið áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun sé vara uppseld og eða breyting verður á verði og vöruframboði. Í slíkum tilfellum verður haft samband við kaupanda sem hefur þá val um endurgreiðslu eða val á annarri vöru. 
Afgreiðslutími á vörum getur verið allt að 5 virkir dagar frá því að pöntun er gerð. Um póstsendingar gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp.

Trúnaður

  Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum að frátöldum upplýsingum til flutningsaðila, upplýsingar á borð við nafn og heimilisfang sem þarf til að koma vörum til kaupanda.

 

Notkun á persónuverndarupplýsingum
  Sendingar úr kerfi netverslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir netverslunarinnar geta ætíð afskráð sig af póstlista og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum. 

 

Afslættir eða tilboð
  Afslættir og afsláttarkóðar (codes) gilda ekki fyrir vörur sem fyrir eru á tilboði eða með öðrum tilboðum.

 

Skil eða skipti á vöru
  Skilaréttur á vöru eru 14 dagar að því tilskildu að varan sé ónotuð og henni skilað í góðu lagi. Hvert skilamál er hins vegar metið fyrir sig útfrá aðstæðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 14 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag sem varan var keypt. Ef vara er gölluð er mikilvægt að seljanda sé tilkynnt um það ekki síður en sólarhring eftir afhendingu. Annars er engin leið að vita hvort um galla sé að ræða eða hvort varan hafa eyðilagst í höndum kaupanda.
Ef skil/skipti fara fram með Dropp greiðir viðskiptavinur sendingarkostnað (báðar leiðir ef um skipti er að ræða).
Fyrir skil/skipti hafið samband við okkur á Instagram @prjonahornid eða á póstfangið prjonahornid@prjonahornid.is

 

Höfundaréttur og vörumerki
  Allt efni á netsíðunni prjonahornid.is eins og texti, grafík, lógó, hnappar, táknmyndir, myndir og hugbúnaður er í eigu SMG65/prjónahornsins. Því er öll notkun á efni af vefsíðunni óheimil eða háð leyfi frá eiganda þess.

 

Lögssaga og varnarþing
Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljenda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndar skal reka það fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.